miðvikudagur, október 31, 2007
sunnudagur, október 28, 2007
laugardagur, október 27, 2007
Hjarta mitt brennur af þrá
Mundu mig
Alltaf annað slagið verð ég örlítið einmana að bíða hérna alein
Mundu mig
Alltaf annað slagið verð ég örlítið viðkvæm og verð að fá að gráta mig út
Mundu mig
Alltaf annað slagið verð ég örlítið leið og finnst sem lukkan hafi leikið mig á
Mundu mig
Alltaf annað slagið verð ég örlítið hrædd þar til ég horfi inn í augun þín blá
Mundu mig ætíð
Alltaf annað slagið finn ég til
Mundu mig ætíð
Alltaf annað slagið finn ég til
Mundu mig
Alltaf annað slagið verð ég örlítið viðkvæm og ég verð að vera hjá þér
Mundu mig
Alltaf annað slagið verð ég örlítið viðkvæm ef ég heyri ekkert frá þér um sinn
Mundu mig
Alltaf annað slagið verð ég örlítið friðlaus svo ég fyllist tómri löngunarþrá
Mundu mig
Alltaf annað slagið verð ég örlítið hrædd þar til ég horfi inn í augun þín blá
Mundu mig ætíð
Alltaf annað slagið finn ég til
Mundu mig ætíð
Alltaf annað slagið finn ég til
Viltu koma strax í kvöld
Viltu koma til mín núna
Og hjá þér dvel ég ár og öld
Því við eigum samleið núna
Er við sameinumst gatan er greið
Okkar lífsins áleit
Og saman tvö við sigrað getum heiminn í dag
Í sameiningu höfum við á hlutunum lag
En án þín virðist eins og ég hengd sé upp á þráð og ólíklegt að verði á því breyting í bráð
Ég vil þú komir í kvöld
Þú komir til mín strax í kvöld
Vinur minn ég vona að þú þráir það heitt
Að vera hérna alltaf mér hjá
Þú öllu hefur breytt
Hjarta mitt brennur af þrá
Vinur minn ég vona að þú þráir það heitt
Að vera hérna alltaf mér hjá
Þú öllu hefur breytt
Hjarta mitt brennur af þrá
Mundu mig ætíð
Alltaf annað slagið finn ég til
Mundu mig ætíð
Alltaf annað slagið finn ég til
Viltu koma strax í kvöld
Viltu koma til mín núna
Og hjá mér dvelja ár og öld
Því við eigum samleið núna
Er við sameinumst gatan er greið
Okkar lífsins áleit
Og saman tvö við sigrað getum heiminn í dag
Í sameiningu höfum við á hlutunum lag
En án þín virðist eins og ég hengd sé upp á þráð og ólíklegt að verði á því breyting í bráð
Ég vil þú komir í kvöld
Ég veit þú kemur strax í kvöld
Vinur minn ég vona að þú þráir það heitt
Að vera hérna alltaf mér hjá
Þú öllu hefur breytt
Hjarta mitt brennur af þrá
Vinur minn ég vona að þú þráir það heitt
Að vera hérna alltaf mér hjá
Þú öllu hefur breytt
Hjarta mitt brennur af þrá
Hjarta mitt brennur af þrá
fimmtudagur, október 25, 2007
Ein stærsta hótelkeðjan á Bretlandseyjum, sem sérhæfir sig í ódýrri gistingu, hefur þurft að þjálfa starfsmenn sína sérstaklega til þess að taka á óvanalegu vandamáli, en mikil aukning hefur orðið á því að gestir hótelkeðjunnar gangi naktir um ganga hótelanna í svefni.
Travelodge, sem rekur yfir 300 hótel á Bretlandi, segir að tala svefngengla hafi sjöfaldast sl. ár og að í 95% tilfella sé um fáklædda karlmenn að ræða.
„Við höfum orðið vör við aukinn fjölda tilfella undanfarin ár svo það er mikilvægt að starfsmenn okkar viti hvernig eigi að aðstoða svefngengla ef slíkt mál kemur upp,“ sagði Leigh McCarron hjá Travelodge.
Meðal þeirra ráða sem fyrirtækið mælir með er að starfsmenn í afgreiðslunni séu ávallt með handklæði við höndina ef nakinn svefngengill fer á stjá.
Að sögn hótelkeðjunnar hafa umræddir gestir m.a. spurt starfsmenn hótelsins hvar klósettið sé að finna, hvort þeir geti útvegað þeim dagblað eða hvort þeir geti skráð sig út þar sem þeir séu orðnir of seinir í vinnuna.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að ýmislegt geti valdið því að fólk gangi í svefni, t.d. streita, áfengisdrykkja, ostaát eða óhófleg koffeinneysla. Í flestum tilvikum fara svefngenglar á stjá þegar ein til tvær klukkustundir eru liðnar frá því þeir gengu til náða, en það er sá tími þegar fólk er við það að ná djúpsvefni.
Kv. Stjórnin,... Næææætur, drauuumalönd, dimmblárhiminn við sjónarröndþriðjudagur, október 23, 2007
Kv. Stjórnin (nei eða já, af eða á!)
sunnudagur, október 21, 2007
þriðjudagur, október 16, 2007
laugardagur, október 13, 2007
föstudagur, október 12, 2007

Kaffibarþjónar á lausu eru sem hér segir (kostir fylgja):
Héðinn: Myndarlegur, ljóshærður og hefur áhuga á ljósmyndun, fötum, ferðalögum, nýtur þess að lesa góða bók (Litli Prinsinn). Héðinn er ekki reyklaus og reglusamur en er samt sætur.
Kristín: Vígaleg valkyrja að norðan. Gengur rösklega til verks hávær og skýrmælt. Kristín er myndarleg í eldhúsinu, kann bæði að elda góða steik og panta heitar flatbökur með bearnaise og frönskum. Hefði gaman af löngum göngutúrum, en,...
Þrallur: Er hvers manns hugljúfi, alltaf til staðar þar sem er stuð. Hann hefur staðið fyrir ófáum atburðunum s.s. rjómasprautuslag, Zoolanderpartýi, klámstjörnupartýi og ANTM á Q-bar. Þrallur er sætur, hress og skemmtilegur. M.ö.o fullkominn.
Kate Bush - Wuthering Heights
O_O.... Það verður einhver að endurtaka þetta á næstu árshátíð og taka það upp fyrir mig... mér dettur Marta strax í hug... já?!
fimmtudagur, október 11, 2007
þriðjudagur, október 09, 2007
vil bara minna á að það er ANTM annað kvöld á Q-Bar og bið ég um það eitt að við fjölmennum þangað svona rétt fyrir níu bara koma okkur vel fyrir og spjalla
gamlir sem nýjir starfsmenn velkomnir
Kv Stjórnin (þó ég sé ekki offissíallí í stjórninni...)
ps
já og Haffi mig langar mikið til að sjá þetta vídjó sem þú segir að minni á mig.....





