fimmtudagur, nóvember 01, 2007

Bara svona í framhaldi af umræðunni um hann Karl sem er svo skotinn í bílunum sínumm...

Ákærður fyrir hjólreiðar

mynd
Hjólið á myndinni tengist fréttinni ekki á nokkurn hátt.

Karlmaður í Skotlandi hefur verið settur á lista yfir kynferðisafbrotamenn fyrir tilraun til að stunda kynferðismök með hjólinu sínu. Það voru tvær þernur sem komu að Robert Stewart þar sem hann var í miðjum klíðum á hótelherbergi í bænum Ayr í Október í fyrra.

Stewart var ákærður fyrir athæfið og síðastliðinn miðvikudag viðurkenndi hann frammi fyrir dómara að hafa gerst sekur um ólöglegt athæfi af kynferðislegum toga. Í réttarhöldunum var því lýst hvernig þernurnar opnuðu dyrnar að herbergi Stewart þegar enginn svarðaði þegar þær börðu dyra. Þær gengu inn í herbergið og þá blasti sýnin við þeim:

„Stewart sat klofvega á hjólinu íklæddur hvítum stuttermabol einum fata og hreyfði hann lendar sínar fram og til baka eins og hann ætti í samförum við hjólið," sagði önnur þernan fyrir dóminum á miðvikudaginn.
Þær stöllur hlupu rakleitt út úr herberginu og létu hótelstjórann vita og skömmu síðar var lögreglan mætt á vettvang. Stewart hefur verið settur á lista yfir kynferðisafbrotamenn en dómari tók sér frest fram í Nóvember með að ákveða refsingu hans.

Stewart er ekki fyrsti Skotinn sem ákærður er fyrir kynlíf með dauðum hlutum, því rafvirki að nafni Karl Watkins var fangelsaður árið 1993 fyrir að eiga kynferðismök við gangstéttar.