miðvikudagur, ágúst 06, 2008

Núna er ég nýkomin frá Eyjum og ég verð bara að mæla með að allir fari á Þjóðhátíð! Allavega meðan fólk er barnlaust og er alveg sátt við að vera á rassgatinu 4 kvöld í röð.

Ég er líka komin með plan fyrir næstu verslunarmannahelgi - við tökum bara gott Kaffitársdjamm í Eyjum. Eru ekki allir game eða?

Ég er samt ekki viss hvort ég sé enn þunn eða bara svona asskoti þreytt...

3 ummæli:

kristin sagði...

ég mæti

Kartaflan sagði...

Já sama hér...
Það verða örugglega fleiri í Eyjum en voru á Skjalfta (barnum á Egilsstöðum)um versló hahaha

Heida sagði...

ég veit ekki hversu margir komast fyrir þar, en það voru allt að 13 þús í eyjum...