fimmtudagur, mars 29, 2007

Ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar ég las það að sennilega væri stórgoðið mitt David Hasselhoff búinn að eignast keppinaut á netinu ég ætlaði ekki að trúa því þannig að ég fór og kynnti mér málið.
Maðurinn sem um ræðir heitir Ronn Moss og var í hljómsveitinni Player á árunum 1977 til 1983 en þá hætti hann til að huga að leiklistinni. Hefur hann unnið til nokkurra verðlauna og þykir mjög fær í sínu starfi en hann er best þekktur sem Ridge Forrester í Bold and the Beautifull.
Núna er maðurinn farinn að snúa sér að tónlistinni aftur samhliða leik sínum í bogb og gaf hann út sóló diskinn Uncovered.
Ég bara veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þetta

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég held að folahlutverkið sem hann hefur leikið síðustu fímmtíu ár í BogB hafi eitthvað stigið honum til höfuðs greyinu!!

Annars fer hver að vera síðastur að finna út hvaða annar leikari sem leikur í BogB er líka með farsælan söngferil og tekur stundum lagið í þáttunum??? Og getið þið nú! Aukastig fær svo sá sem að getur nefnt hvaða ódauðlega karakter sá sami lék í gífurlega vinsælli sápu frá honum Spaulding frænda á síðustu öld.

Góðar stundir
Jarvis

Kolbrun Yr sagði...

guð minn góður

kristin sagði...

Hinn leikarinn í BogB heitir Jack Wagner og var að gefa út diskinn Dancing in the moonlight. Hann er búin að leika í flest öllum sápunum þarna vestanhafs og við munum flest eftir honum úr Melrose Place.

Rick Hearst heitir sá sem að bæði er búin að vera í BogB og í Leiðarljósi. Í Leiðarljósinu lék hann Alan Michael Spaulding og í BogB lék hann Wip sem er 4 eiginmaðurinn hennar Brooke.

Svo er það gellan úr Close to home hún lék lengi vel Bridget dóttir Brooke og einhvers af Forrester feðgunum. Það er frekar erfitt að fylgjast með því, því hún er búin að vera gift Ridge 4x, Eric pabba hans og Thorne bróðir hans. Svo finnst henni skrítið að Stephany hati sig :)

Nafnlaus sagði...

Ííha Kristín vinnur keppnina og fær stig !!!

Mig langar annars mikið að vita hvað eðalsíður þú ert að lesa vinan?? Alltaf gott að kíkja aðeins á það sem er að gerast í sápunum. Já Brooke er alveg ótrúleg búin að flækja fjölskylduböndina all svakalega, ég meina elstu börn hennar eru hálfsystkini föður bróður þeirra. Þannig að hálfsystkini þitt er að sama leyti systkinabarn þitt.....náði einhver þessu. Og í þokkabót á hún líka eitt barn með fyrrverandi dóttur sinnar, nema hann var bara ekki fyrrverandi fyrr en eftir að hún varð ólétt..ööööö SÁPA !!!!! Annars vissi ég ekki að Alan Michael myndi láta sjá sig í BogB en hann er einmitt nýbúinn að giftast Lucy ástinni sinni í GL og þau lentu einmitt í lífsháska í honneimún svo nú er það bara framhjáhald eða geðveila sem á eftir að stía þeim í sundur enda á enginn eftir að eyða ævikvöldinu með ástinni sinni í sápu af þessum mælikvarða.

Góðar stundir
Jarvis

kristin sagði...

Þegar manni langar að vita einhverja tilgangslausa hluti þá googlar mar bara og sér hvert það leiðir sig :)

Nafnlaus sagði...

RIIIIIIDGE! Hann og Taylor were not meant to be og heldur ekki söngferillinn hans...

Þrallur sagði...

Kristín... farðu aftur í menntó og vertu með í Gettu Betur