föstudagur, október 12, 2007


Kaffibarþjónar á lausu eru sem hér segir (kostir fylgja):

Héðinn: Myndarlegur, ljóshærður og hefur áhuga á ljósmyndun, fötum, ferðalögum, nýtur þess að lesa góða bók (Litli Prinsinn). Héðinn er ekki reyklaus og reglusamur en er samt sætur.

Kristín: Vígaleg valkyrja að norðan. Gengur rösklega til verks hávær og skýrmælt. Kristín er myndarleg í eldhúsinu, kann bæði að elda góða steik og panta heitar flatbökur með bearnaise og frönskum. Hefði gaman af löngum göngutúrum, en,...

Þrallur: Er hvers manns hugljúfi, alltaf til staðar þar sem er stuð. Hann hefur staðið fyrir ófáum atburðunum s.s. rjómasprautuslag, Zoolanderpartýi, klámstjörnupartýi og ANTM á Q-bar. Þrallur er sætur, hress og skemmtilegur. M.ö.o fullkominn.

1 ummæli:

magzterinn sagði...

Éttla fááá....ohh sjitt ég get ekki valið..... má fá alla???