miðvikudagur, nóvember 19, 2008

Írland eftir 10 mánuði


Hvað segiði þarna hinum megin?

Versta kaffi í heimi í skólanum hans Scott, varð að taka mynd af því!

Ég er í svaka fíling hérna, ennþá uppí rúmi að spila World of Warcraft.

Buxurnar mínar rifnuðu utan af mér um daginn, búinn að leggja á smá pínu.

Orðið rigning og nafnið Írland eru komin af sömu forngermönsku sögninni írig sem þýðir rennandi blautt.

Maður venst vonda matnum, ég get núna ekki lifað án full irish breakfast

Nánast enginn hérna klæðist svona 101rvk style, sem er ekki nógu gaman. En það er fullt af nackers, beggars, gypsies og travelers.

(vá hættiði bara að lesa núna þessi færsla er í þann mund að verðða hund leiðinleg)

Nackers: Ganga um í jogginggöllum, hvítum íþróttasokkum yfir joggingbuxunum, hvítum íþróttaskóm, hárið sítt að aftan, stutt gelað beint uppíloft ofaná (stelpurnar ofmálaðar og í tagl). Ganga um biðjandi um sígarettur, ávalt blind full. Hlusta á leiðinda rapptónlist úr gemsunum sínum í strætó.

Beggars: Nackers sem hafa verið hent út, útúrdópaðir en meinlausir. Sitja allstaðar með pappaglösin sín. Hef heyrt að þeir græði slatta, eða það segir vinkona mín sem er úr hverfinu sem þeir flestir koma frá.

Gypsies: Eftir að Rúmenía fór í ESB hafa fullt af frábærum rúmönum komið til Írlands, æðislegt fólk. Og með þeim komu sígaunarnir. Sígaunar hafa bara einn hlut sameiginlegt með Esmeröldu úr Disney,... hárliturinn. Þetta fólk er óþolandi, sitja útum allt með krakkana sína í fanginu að betla. Krakkarnir yfirleitt sofandi, hef heyrt að þeir svæfi börnin, veit ekki hvort það er satt. Fara líka í búðir og þykjast skoða meðan krakkarnir stela. Mennirnir eru vasaþjófa víst, hef ekki orðið var við þá svo mikið samt.

Travellers: Þeir eru írskir sígaunar eða flakkarar, búa í hjólhýsum og reyna að lifa af án þess að gera neitt gagn í þjóðfélaginu. "Gera við" vaskinn heima hjá þér svo hann bili aftur. Þykjast allment vera viðgerðamenn. Þeir eru eins og sígaunarnir og velja þetta líferni.

En írar eru hið besta fólk fyrir utan þetta, maður þarf bara að vita hvar á að leita, og læra að hunsa betlarana.

Ætlar enginn að koma í heimsókn?

5 ummæli:

Kartaflan sagði...

Við Kristín vorum nú búnar að plana að koma í besög og drekka bjór með þér ;) spurning hvenær það verður

Þrallur sagði...

núna!

harp sagði...

mjér fannst þetta mjög skemmtileg lesning, ég planlegg á heimsókn ef þú verður þarna ennþá eftir ár, því þá á ég pening, eða þegar við seljum Skarpó..

kristin sagði...

ég segi bara að við leggjum öll í púkk og bjóðum honum bara heim að heimsækja okkur. Gætum útbúið svona söfnunarbauka og haft á kaffihúsunum. Fólk elskar enþá Trallinn

Kolbrun Yr sagði...

Við gætum örugglega safnað fyrir þralli heim með því að halda eitt gott partý og selja dósirnar!

en annars verð ég að segja að mér finnst Nackers ekkert hljóma það slæmt...sé þórhall alveg fyrir mér í strætó með gemmsann sinn *bitchhoesfukkersfacefukkershoes*
damdamramm!