fimmtudagur, september 14, 2006

Jæja, kominn smá vonargeisli inn í líf mitt eftir fjögurra daga ógeðslegrar ælupestar og tveggja vikna hvergibúindi... Nei ég á ekki von á barni... ég er kominn með herbergi! Pæliði í því krakkar... og mitt á milli Kringlu og Miðbæs! Reyndar engin sturta en það er nú svona svakalega frábær starfsmanna aðstaða undir stiganum í Kringlunni, þannig að ég fer nú bara í heita pottin þar og svo gufu á eftir áður en ég mæti í vinnu, svo er ekkert eldhús þannig að ég þarf ekkert að passa aukakílóin, það verður aldrei neitt til! Draumur ekki satt, ég er allavega í skýjunum.

Jej!!

Koma svo Kolbrún allavega kynna sig það er nú lágmark, og kommenta af og til!

Engin ummæli: