þriðjudagur, janúar 22, 2008

Skrýtið þegar maður fréttir af dauða einhvers og fær sting í magann afþví að manni fannst maður hafi þekkt manneskjuna. Svipað og það hefur áhrif á mann þegar manneskja á Íslandi sem maður rétt kannaðist við hverfur á brott. Ég býst við að dauði annars minni mann á sinn eigin ódauðleika og þessvegna verði það persónulegt, það speglast í manni sjálfum. En þá er kanski mikilvægast að heiðra líf manneskjunnar og muna að hún lifði og að hún skipti mann einhverju máli, sama hversu léttvægileg kynnin virtust á sínum tíma.

5 ummæli:

Spookyo_O sagði...

æjjj... en fallegt myndband... hugsa sér... af hverju að drepa sig? frægur, fallegur, með konu og barn... fuss!

Heida sagði...

Rosalega sorglegt. Ég þurfti að kíkja á 5 fréttasíður áður en ég trúði þessu. Og þar sem þetta var Breaking News á Sky, þá hlýtur það að vera. :(

Spookyo_O sagði...

ok þau voru skilin... samt átti barn...

Kolbrun Yr sagði...

sjitt...ég trúi þessu ekki...alltaf erfitt svona sjálfsmorð...fokkk

harp sagði...

svo sorglegt fjékk alveg sting í hjartað þegar jég sá á mbl.is, en það er ekki víst að það hafi verið sjálfsmorð... og jég vona svo að það sjé ekki þannig.
hann var svo myndarlegur og hæfileikaríkur og jég held jég geti haldið áfram endalust..... hætti hjér