mánudagur, apríl 07, 2008

Ævintýri Kaffhalls og Korgbrúnar...fjórði hluti

Er Höfðatorgsfrúin hafði fært sig inn í stofu sneri Kaffsteinn sér að Korgbrúnu og Kaffhalli og sagði þeim allt sem á hafði gengið. Hann sagði þeim frá hinum illa Zorgon sem hafði áætlanir að heilaþvo saklausa kaffibarþjóna og nýta þá til að sigra keppnina "ofurkaffibarþjónar heimsins" til að öðlast nægt vald til að stjórna heiminum. Kaffsteinn hafði misst systur sína og ástmann til liðs við hin illa Zorgon en hafði sjálfur sloppið og komist til seiðmannsins Bumbamba sem færði honum 5 kraftmikil vopn til að geta barist gegn hinum illa Zorgon, Þjöppu réttlætisins, Þrumugreipina, Ofurkönnuna, Töfra hræran og Síróp sannleikans. Kaffsteinn fullsvissaði Korgbrúnu og Kaffhall að saman gætu þau undir leiðsögn höfðatorgsfrúarinnar fundið styrkin til að þurrka Zorgon af andliti jarðar! Svo að lokum þagnaði hann og beið eftir svari með tárin í augunum.


to be continued....

sunnudagur, apríl 06, 2008

Ævintýri Kaffihalls og Korgbrúnar...þriðji hluti

Sjálf kaffihúsadrottningin Kristín Höfðatorgsfrú. Svo fín og svo flott í pelsinum ógurlega sem var búin til úr afar fágætum og loðnum kaffibaunapöddum.
Hún leit ögrandi niður á litlu ofurkaffibarþjónana sem stóðu stjarfir í forstofunni.
"Krakkar ég er að opna stærsta og flottasta staðinn sem hingað til hefur sést og mig vantar aðeins þá bestu í vinnu.....mig vantar ykkur í vinnu. Hvað segið þið eruð þið til í að koma með mér á spjöld sögunar með þessu kaffihúsi?" Svo gekk hún áleiðis inn í íbúðina settist niður í stofunni og beið eftir svari.



To be continued

Ævintýri Kaffhalls og Korgbrúnar... Annar Hluti

Korgbrún blótaði gestinum en fór samt til dyra.
"Klæddu þig í eitthvað" Hreytti hún að Kaffhalli, láttu ekki gestinn sjá húðflúrið. Stuttu eftir fæðingu höfðu þau verið tekin frá foreldrum sínum til að alast upp á Kaffibúgarði í Suður Papúa þar sem þau höfðu verið send í ofurkaffibarþjónaþjálfun hjá La Martazocco og mjólkurlist búgarðsins tattúveruð á hægri rasskinn Korgbrúnar og Vinstri rasskinn Kaffhalls.
Gesturinn reyndist vera gestir, vinir þeirra frá Blawan á Java, Kaffsteinn kaffiálfur og

Coffee Enema

Ég hef nú ekki fengið mörg ástarbréf um ævina, en þessi fáu hafa verið ansi smellin.

Í nótt í draumi var mér fært ástarbréf af ungum pilti í skólanum, þetta var soldið súrrealískur draumur en svo fer ég að lesa bréfið frá honum sem var nokkuð ljóðrænt. Í því stóð meðal annars(man ekki á hvaða tungumáli það var samt): ...og þegar ég sé þig á ganginum veit ég aldrei hvað ég á að gera, hvort ég eiga að tala við þig...eða bara snerta á þér brjóstin....blablabla...segðu mér hvað ég á að gera...mér líður eins og bilaðri sprautu sem vill ekki sprautast úr....blabla....

Hahaha ég bara las yfir bréfið í draumnum og horfði á vesalings ástsjúka piltinn og leið frekar asnalega...hugsiði ykkur samt...þetta var eiginlega eins og kynlífsdraumur - bara án kynlífsins!

Já það eru spennandi tímar í Noregi, þegar mesta action-ið eru ástardraumabréf! hahahah

Vonandi gátuð þið hlegið yfir þessu, annars var þetta algerlega tilgangslaust blogg sem ég ætti að skammast mín fyrir!

Ævintýri Kaffhalls og Korgbrúnar... Fyrsti Hluti

Einu sinni voru voru systkini sem hétu Kaffhallur og Korgbrún. Þau áttu margt sameiginlegt en deildu þó aðeins einum litning.
Einn morguninn þegar Korgbrún vaknaði eftir næturlanga drykkju á börum bæjarinns, uppgötvaði hún sér til mikillar skelfingar að hún fann hvergi naglaklippurnar sínar. "Kaffhallur! Hvar eru naglaklippurnar mínar? Ég verð að finna þær!" "Hvaða læti eru þetta" urgaði í Kaffhalli. Hann var allsekki hress að vakna við þessi læti því honum hafði einmitt verið að dreyma svo spennandi og erótískan draum.
"Nei í alvörunni Kaffhallur, ég verð að finna þær...ég get ekki farið útúr húsi með svona táneglur!" kjökraði Korgbrún.
"Oh ok ok ok, ég skal þá fara á fætur og hjálpa þér að leyta" rumdi í Kaffhalli. Hann dröslaði fótunum út fyrir rúmbríkina með miklum erfiðleikum og sárri eftirsjá eftir draumnum.
Í því að hann stóð á fætur hringdi dyrabjallan.

*framhald*

laugardagur, apríl 05, 2008

Þrallur þú ert með mjér í kvöld..

föstudagur, apríl 04, 2008

Meiddi

ég skar mig áðan
var að breyta í kringum kassann
hafði lagt frá mér svona sköfu
splongjs beint með puttann á hnífinn
og það kom blóð
and loads of it
fór útum allt á prentarann

báttið!


Sökudólgurinn!!!!


já það er hasar í lágmúlanum

miðvikudagur, apríl 02, 2008

I AM SO BOOOREEED

og ég var að komast að því að ég er með kryppu....







sjáiði mun á myndunum???

þriðjudagur, apríl 01, 2008

sunnudagur, mars 30, 2008

það eina sem mig langaði í þegar ég kom heim í kvöld
eftir langan en góðan æfingardag
og ferð á vitaborgara var
BJÓR...
opnaði ísskápinn
enginn BJÓR!!!!!
þá hafði minn elskulegi Hörður
klárað hann á föstudaginn
og ekki verið að segja frá því
svo ég hefði getað farið í ríkið í gær...
þegar við vorum í kringlunni og
ekki er ríkið opið á sunnudögum....

góða nótt

p.s. fer bara í ríkið á morgun
það er alveg í lagi að fá sér bjór þá er það ekki??

föstudagur, mars 28, 2008

Japanese foodfight!

Þetta er bara svo flott!...Ég vil að Kringlan steli þessu atriði fyrir árshátíðna...ok krakkar?


See more funny videos at CollegeHumor
Ætti ég að taka þátt í mjólkurlist????





já það er sól í Lágmúlanum.
Hver er til í að kenna mér tölfræði? Normaldreifingu og líkindarreikning? Mig langar nefnilega rosalega mikið að útskrifast í vor, en þessi stærðfræði áfangi er alveg að drepa mig (úr leiðindum).

Bleh, hata þetta fag.

-_-

fimmtudagur, mars 27, 2008

Emil í Kattholti er fullorðinn!




































Emil sást síðast á 8.áratugnum nokkru fyrir kynþroska sinn en var ljósmyndaður á dögunum af The Facehunter á klúbb í London.
Já það er með Emil eins og fleiri barnastjörnur að fullorðins útgáfan varð ekki allveg jafn myndarleg og snoturt barnaandlitið sagði fyrir um.
En stílinn viðheldur sér í gegnum árin hjá Emil, gott hjá honum sko. Fashion passes - style remains!

þriðjudagur, mars 25, 2008

O M G ! ! ! ! ! !

Ég er ekki að trúa þessu!
Haldiði ekki bara að ég hafi verið að afgreiða tvífara Russel Crow áðan !! nema hvað hann var svolítið yngri..eða sko á mínum aldri...
Ég var að pæla í að segja honum að ég ætlaði að vera tígur í kvöld arr ;)
Vildi bara deila gleðinni með ykkur þar sem ég hef svo svakalega mikið að gera hérna í limalindinni

mánudagur, mars 24, 2008

Human Giant

sunnudagur, mars 23, 2008

Jæja Kiddós
svona áður en dagurinn er búinn
langar mig að óska ykkur

GLEÐILEGRA PÁSKA

vonandi hafið þið haft það gott
og borðað nóg
og drukkið nóg

góða skemmtun í kvöld
ef þið eruð að fara að skemmta ykkur
sjúbbs Harpa

fimmtudagur, mars 20, 2008

Kinetsu Hayabusa



Hver kemur með mér í nett flipp?

miðvikudagur, mars 19, 2008

Föstudagsfróðleikur in advance !!!

Þetta er bara fyrir þig Kristín..
að vera að yfirgefa okkur svona snemma !
en allavega...
-Vængjaður getnaðarlimur var tákn borgarinnar Pompeii. Borgin sem var sumardvalarstaður rómverja grófst í eldgosi árið 79 e.kr.
- Meðalmaður hlær 13 sinnum á dag.
- Ef allir íbúar Kína myndu ganga fram hjá manni í beinni röð myndi hún aldrei hætta vegna þess hve hratt þeim fjölgar.
- "Það er ekki það að ég sé hræddur við að deyja. Ég vil bara ekki vera þar þegar það gerist" (Woody Allen)

Já, alltaf gaman af þessu..
En ég mæli með að allir reyna að ná sér í páska kalda...ég fékk 5 síðustu hér í smáralind..
hlakka til að drekka þá
Gleðilega páska allir saman =)

þriðjudagur, mars 18, 2008

Kaffi Í Góðum Vínanda


Hjörturinn okkar vann annað árið í röð.

Þeir sem ekki vita hvað þessi keppni gengur út á:

Keppendur hafa átta mínútur til þess að gera tvo hefðbundna Irish Coffee og tvo frjálsa áfenga drykki. Tæknidómarar dæma færni keppandans og smakkdómarar dæma bragð drykkjanna.

Til Hamingju Hjörtur!

(myndin er af Þralli, Kolbrúnu og Hirti í góðum vínanda)
Totally cheesy I know - or should I say yoghurty?





Next few days will be cool. I will eat meatballs and drink soda in Karlstad with wonderful Telma.

Ekki treysta þýðingavélum á netinu:
-Næstur sem minnir á gömlu dagana) vilja vera kaldur. ÉG vilja borða kjötbolla og drykkur bjór í Karlstad með dásamlegur Telma.

-Nästa få dag vilja bli göra sval. Jag vill äta meatballs och dricka soda i Karlstad med underbar Telma.

-Neste få dager ville være avkjøle. Jeg vil spise meatballs og drikk sodawater inne Karlstad med praktfull Telma.

-Siguiente poco días albedrío ser fresco. Comeré albóndigas y beber soda en Karlstad con maravilloso Telma.

laugardagur, mars 15, 2008

Minnir þetta einhvern á eitthvað?????




já ókeyj er að gera ritgerð

hvítvín og ritgerð MEGA combó....

föstudagur, mars 14, 2008

Nýtt Tattoo

Image and video hosting by TinyPic

jubb, við fengum okkur í stíl:P

fimmtudagur, mars 13, 2008

Kristín var að kvarta yfir því að það skrifaði enginn hérna á þessa síðu
ég skrifa
þó ég hafi EKKERT að segja

hafiðið það PUNKTUR.

þriðjudagur, mars 11, 2008

Nýja Heimilisfang Þralls

311 Errigal Road
Drimnagh
Dublin 12
Veit ekki hvort þetta hafi verið póstað áður eða hvort þið séuð öll löngu búin að sjá þetta. Mér varð bara allt í einu hugsað til þessa myndbands því það var svo fyndið í minningunni. Og það stendur enn fyrir sínu ;D

Veit ekki hvort þið horfið á CSI Miami, en það skiptir litlu, því þetta er samt fyndið!

mánudagur, mars 10, 2008

Snickers tertan

Jæja þá er það orðið opinbert snikerstertan er að koma aftur á kaffihúsin í sinni upprunalegu mynd :)
Eruð þið ekki spennt.....

sunnudagur, mars 09, 2008

Ég er smá vandræðum hérna. Ég þarf að skila inn 400 orðum um það hvað ég er frábær og skemmtileg og fullkomin fyrir árbók skólans, en mig vantar alveg 398 orð til að fylla upp í kvótann!

Ef þið eruð í brjáluðu stuði megiði endilega henda saman línu eða þrem um kynni ykkar af mér, þá væruði best í heimi! Það má bæði henda því í komment eða senda mér bara mail.

Þið eruð best, Heiða

föstudagur, mars 07, 2008

LÆF FROM LÁGMÚLINN.....

sjiii getiði þrisvar hver situr á kaffihúsinu hjá mér núna??????

ohhh þeir gerast ekki frægari skiljiði mig....





svo hrósaði hann mér fyrir munstrið mitt
sagði að hann tímdi varla að drekka kaffið
þegar það væri svona fallegt munstur í bollanum

ég bráðnaði í gólfið........

Harpa í yfirliði

miðvikudagur, mars 05, 2008

S.E.L.U.R.

Jæja gott fólk,

Í kvöld kl 19, opnar loksins nýtt sýningarrými myndlistarnema LHÍ. Rýmið hefur hlotið nafnið S.E.L.U.R. og er staðsett í kjallara nýja Kaffi Hljómalindar (gamla Kling og Bang) að Laugarvegi 23.

Fyrsti sýnandi er Þorvaldur Jónson, nemi á öðru ári, og búumst við við miklu húllumhæi!

Endilega komið og kíkið!
S.E.L.U.R. er svo opin alla daga á opnunartímum Kaffi Hljómalindar:)

knús,
-Kolbrún Ýr

Image and video hosting by TinyPic

þriðjudagur, mars 04, 2008

Vá... tékkið á kvikmyndagerðarfólki með suttmyndir. Megatöff!: http://polpope.deviantart.com/art/THE-BLIND-SPOT-67381815

mánudagur, mars 03, 2008

Haha

laugardagur, mars 01, 2008

Niðurstaða Innanhúsmóts

Þau sex sem keppa á Íslandsmeistaramóti Kaffibarþjóna eru:

Bjarmi
Harpa
Íris
Kata
Kristín
Valur

Vei, en gaman að koma með fréttirnar frá Döbblin!
og spennan magnast.....

föstudagur, febrúar 29, 2008

Ég er léleg...

Já gott fólk...ég ætlaði til Hörpu í kveld...ætlaði að vera komin um níu, hálf tíu, fá mér kannski tvo bjóra og rölta heim í bólið ekki seinna en eitt...(vinna á morgun sjáiði til).

Nú er klukkan hálf ellefu og enn er ég ekki lögð af stað...það lítur út fyrir að það verði bara ég, bjórinn og law and order í kveld...svo get ég haldið áfram að væla alla næstu viku yfir því að ég geri aldrei neitt og hitti aldrei neitt fólk, sjihh...


well...ROCK ON!

Image and video hosting by TinyPic

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Hehe mér fanst rétt að allir fengu að sýna sínar bestu hliðar hérna :P







þriðjudagur, febrúar 26, 2008

Haffi og Hommi

Ef maður gúgglar "hommi" þá kemur mynd af Haffa okkar.

Ef maður gúgglar "haffi" þá kemur mynd af hommum,... ekki Haffa samt.

Fallegu Kaffibarþjónarnir




Sko Kata einsog sagt var í bloggfærslunni það á að RÚLLA á laugardagskvöldið
Salvör afhverju ertu búin að liggja á þessum myndum einsog krummi á gulli
vá hvað ég var samt búin að gleyma kaffifilterljóðunum.
og munið hvað við vorum ÖLL með fínan kinnalit.......
og ég keppti á HÆLUM
og það er einsog ég sé með risa brjóst
og það eru allir svo fínir og sætir og flinkir og ég var eiginlega búin að gleyma hvað þetta er skemmtilegt
fattaði það aftur í gærkvöldi
en tekur líka á maga og sál
svo þarf maður að bíða í heila fimm daga til að vita.....
nóg fannst manni að bíða heilan dag.

Ben Affleck

mánudagur, febrúar 25, 2008

Star Wars

http://youtube.com/watch?v=EBM854BTGL0
Jæja Kiddós

þá er komið að fyrsta holli í innanhúsmóti Kaffibarþjóna Kaffitárs
númer tvö verður á miðvikudaginn og svo seinasta holl og úrslit
svo á laugardaginn, komin spenna í mannskapinn???
ummm já

Fyrsta holl.
Kristín
Harpa
Valur
Annað holl
Hjörtur
Íris
Mímir
Bjarmi
Þriðja holl
Aðalheiður
Tumi
Kata

ekki alveg viss um að þetta sé í réttri röð hjá mér en þá er bara að mæta tímanlega og sjá ALLA JEIJ.....

Svo verður rúllað á laugardaginnnnnnnnnn

föstudagur, febrúar 22, 2008

Do you take American Express?

Þetta fólk sem ég vinn með er sko EKKI artí fartí, þau tala varla ensku og skilja ekkert. Svo er þeim alveg sama um allt. Skilja ekki afhverju fólk vill koffínlaust og nota sömu könnu stundum fyrir soya og venjulega mjólk.

Enginn húmor heldur.

Nema írarnir, homminn(sko hinn(þið vitið alveg að ég er ógó fyndinn og fallegur)) og bandaríkjamaðurinn.

Einn gaurinn fékk spurningu í dag:

Do you take American Express?
-Two espresso? There is table service, take a seat sir!
LOKSINS
er spiluð almennileg tónlist hérna......

Gimme
Gimme
Gimme
Gimme
Gimme more.....

JÁ áfram Britney

fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Héðinn Er prins....

mér finnst frábært að fólk skuli koma til okkar og kvarta yfir dýrum samlokum og fara svo og kaupa sér voða "ódýra" síma.....

beyond my understanding???

kannski er ég þá bara heimsk

þriðjudagur, febrúar 19, 2008

Nöfn

Ef Héðinn væri að vinna á Bewley's væri hann ennþá að kalla alla þú þarna held ég. Furðulegustu nöfn er að finna hérna, og frá öllum löndum:

Eistland: Aigi (kvk)(frábær) og Rommy (kk)
Frakkland: Max, David og Joris (kk)
Írland: Erin, Peter og Joe (öll helgarstarfsfólk)
Ísland: Thor
Ítalía: Giacomo, Corrado og Fabio (er stutthærður með stórt nef, ekki eins og FABIO)
Kína: Li, Peng,... Helen, Grace, Grace og Tina (þau fá að velja sér vinnunafn)
Litháen: Olga og Andrius (Írlandsmeistari)
Finnland: Milla
Króatía: Sonja (furðulegt nafn)
Póland: Anastaszja, Alexandra, Agnieszka, Anna, Anja, Monika, Tomek og Iwona (Humpalot)
Slóvakía: Kiko (þolannekki, en þarf að leyna því, því hann sér um vaktaplanið)
Svíþjóð: Liv
Tékkland: Radovan (eini homminn, alltaf að káfa á mér)
Transylvanía: Beatrix og Zoltan (tala endalaust saman á ungversku)
Ungverjaland: Szolt

Er semsagt að vinna með fullt af frægu fólki: Erin Brockovich, Liv Tyler, Milla Jovovich, Anastasia, Fabio
Tveim drottningum: Beatrix Hollandsdrottning, Sonja Noregsdrottning
Súkkulaðistykki: Rommy
sollý að ég þjappa svona yfir yoda þjappið þitt Þrallur
en ALLIR að kíkja á innlit/útlit í kvöld

ég verð kannski þar að gera kaffi jeij...

Matt Damon

Yoda

mánudagur, febrúar 18, 2008

Vei vei!

Ánægð?
Þralluuuuuuuur? Gætirðu verið svo góður og setja inn link á heimasíðuna mína á linkadálkinn hér til hægri? Mér finnst ég vera svo útundan. :(

Slóðin er ferrarinn.net

sunnudagur, febrúar 17, 2008

það er samt alveg einsog Héðinn sé alsber á myndinni af honum og Kristínu með kampavínið...

föstudagur, febrúar 15, 2008

Af því að það er hálft ár í afmælið mitt langar mig að rifja upp skemmtilega sumarbústaðarferð sem nokkur okkar fóru í um árið:P

Þetta var afar góð ferð, Héðinn fékk lánaðan fjölskyldu bústaðinn og var það gott og skemmtilegt...við fundum nokkur forvitnileg fjölskyldualbúm þar sem afar "spennandi" myndir mátti finna og ekki voru þær fáar af glókollinum okkar:)
Við vorum öll þunn eða ónýt á einhvern hátt við komuna og enn þunnari daginn eftir...
Þess má geta að enginn mundi eftir geisladiskum eða ipodsnúru svo við sátum uppi með "úrvalið" sem mátti finna í bústaðnum (sem allt er í eigu ömmu hans Héðins)...

meðal þess sem gerðist:


Kolbrún og Þórhallur skiptu um "sundbuxur"
Image and video hosting by TinyPic

Við fórum að sjálfsögðu í pottinn (sem var ískaldur mestallann tímann) með fínu spariglösin sem við fundum:)
Image and video hosting by TinyPic

Það var haft kampavín um hönd (og líkama)
Image and video hosting by TinyPic
Þar sem við vorum orðin leið á Celine, Bjögga og Barböru ákváðum við að hringja í Bylgjuna og fá nú eitt gott óskalag...Kolbrún var fengin í verkefnið eftir nokkur kampavínsglös og var það afar skrautlegt...þið getið giskað einu sinni á hvaða lag var beðið um...

Þórhallur var í svona líka fínum nærbuxum sem Harpa gaf honum af einskærri gæsku:
Image and video hosting by TinyPic
Stuttu síðar skallaði Þórhallur þakið á bústaðnum en ástæður þess og aðdragandi skal ekki vera rifjaður upp hér...

Daginn eftir fór Kristín á fætur og undirbjó "lítilsháttar" morgunverð *hóst*
Image and video hosting by TinyPic

Við nutum svo síðustu stundanna í bústaðnum að hlusta á yndisfögru rödd Celine...

:)

-Kolbrún Ýr

ps: tengingin við ammli mitt er að það verður haldið í sumarbústað, þemað er jogginggallar og "afslöppun" ehem...og það er pottur...og kampavin, og bylgjan og og og...u get the picture:)

ps#2: Harpa ég á eila bara myndir af brjóstunum á þér úr þessari ferð? Má ég pósta einni hér? no nipples of course:P

fimmtudagur, febrúar 14, 2008


Já Valentínusardagurinn er runninn upp. Hvað þýðir það fyrir utan rómantík og öfund? Jú Kristínu tókst að verða 28 ára. Sama hvað almættið reyndi þá hafði hún Kristín betur. Toppiði þetta Jimi, Janis og Kurt! Ha!

(Nú munu draugar þeirra örugglega ásækja mig)

Lovjú Kristín!
ég held
að það
sé verið
að reyna
heilaþvo mig
hérna hjá
NOVA
sömu
lögin
allan
daginn
bráðum
verð ég
orðin svaka
tönuð og
með aflitað
hár og
svarta rót
og rosa
grönn
og sæt*


Harpa heilaþvegna í íslenskunámi

útskýringar
*sætari en ég er ......

miðvikudagur, febrúar 13, 2008



Goooooooooooooooooott saaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaánd!!!

mánudagur, febrúar 11, 2008

Alveg sammála Tuma þetta var æðislegt partý og við fórum hamförum í eldhúsinu.
Ha......Tumi manstu mjólkurlistarmunstrið sem við hönnuðum.
En eins og talað var um svo að allir verði klárir í lokalagið í næsta geimi

I WANT TO KNOW WHAT LOVE IS


Get Foreigner Ringtones!

I gotta take a little time
A little time to think things over
I better read between the lines
In case I need it when Im older

Now this mountain I must climb
Feels like a world upon my shoulders
I through the clouds I see love shine
It keeps me warm as life grows colder

In my life theres been heartache and pain
I dont know if I can face it again
Cant stop now, Ive traveled so far
To change this lonely life

I wanna know what love is
I want you to show me
I wanna feel what love is
I know you can show me

Im gonna take a little time
A little time to look around me
Ive got nowhere left to hide
It looks like love has finally found me

In my life theres been heartache and pain
I dont know if I can face it again
I cant stop now, Ive traveled so far
To change this lonely life

I wanna know what love is
I want you to show me
I wanna feel what love is
I know you can show me

I wanna know what love is
I want you to show me
And I wanna feel, I want to feel what love is
And I know, I know you can show me

Lets talk about love
I wanna know what love is, the love that you feel inside
I want you to show me, and Im feeling so much love
I wanna feel what love is, no, you just cannot hide
I know you can show me, yeah

I wanna know what love is, lets talk about love
I want you to show me, I wanna feel it too
I wanna feel what love is, I want to feel it too
And I know and I know, I know you can show me
Show me love is real, yeah
I wanna know what love is...

sunnudagur, febrúar 10, 2008

Hæhæ.

Takk fyrir æðislegt partí í gær Harpa, ég hef sjaldan komist í meiri saumaklúbbsgír í eldhúsinu á einni kvöldstund (og það er í alvörunni meint vel ;) ) Vona að myndirnar komi inn sem fyrst :D

Hér er myndband í tilefni af Kaffitárslaginu 2008 (verst að við náðum aldrei að kveðja undanfara þess almennilega, en vonandi seinna)



Ég elska hvað fólk lék illa á níunda áratugnum.

laugardagur, febrúar 09, 2008

Til hamingju með daginn Harpa!

Myndablogg þér til heiðurs.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

fimmtudagur, febrúar 07, 2008

Sumar manneskjur geta farið svo í taugarnar á mér að ég myndi frekar vinna laugardag í kringlunni með Mörtu, Kristínu, Kolbrúnu, Hörpu og Önnu Sóley öllum saman á bullandi túr!

Haha, elska ykkyr samt!

fimmtudagur, janúar 31, 2008

HAHAHAHHAAAaaaaaAAaaa!

Ég er með æði fyrir þessum gaurum! fæ ekki nóg...

Ég ætla að láta þrjú lög fylgja og mæli svo með þáttunum sem má nálgast í heild sinni á the pirate bay eða á rás eitt frá og með síðustu viku!!


Business socks:



Hiphopopotamus vs Rhymenocerous:



Albi the racist dragon:

Vildi bara vekja athygli á því að það verður BOLLA BOLLA BOLLA annað kvöld
brjálað stuð og endalaust gaman
hlakka til að sjá ykkur
Kv. Kate-skate

þriðjudagur, janúar 29, 2008

okay folks, ég þarf ykkar hjálp!

Ég .arf að taka viðtal við einhvern fyrir fjölmiðlafræði, en mér dettur enginn í hug! Ég var að spá í að ræða við einhvern sem tengist kaffi á einhvern hátt, en ég er samt ekki alveg viss :/ Svo, hver haldiði að sé tilbúinn að ræða við mig? Einhver innan fyrirtækisins eða á ég að leita á nýja kaffislóðir? Ég veit samt ekki hvort að viðtalið muni birtast einhversstaðar, það kemur í ljós síðar.

Endilega látið mig vita ef ykkur dettur einhver í hug.

Aðalheiður
oooog partur tvö verður að fylgja með!

Þetta er nottla bara eðall og á heima á síðunni okkar!
hahaha:P


sunnudagur, janúar 27, 2008

Jæja góða fólk
Þá er loksins komið að því
1. alvöru party ársins
Já, það er satt ég er að fara að halda innflutningsparty
Þemað er : frægar kvikmynda/tv persónur og frægt fólk
Fjörið byrjar um klukkan 22 föstudagskvöldið 1. feb
Staðsetningin myndi vera heima hjá mér á Bakkabrautinni
Hlakka til að sjá sem flesta
Partystuðkveðja
Katrín Alfa

Sértu með bjór, ertu í gírnum

laugardagur, janúar 26, 2008

HARPA SJÁÐU!!!! :D



Your Score: Sad Cookie Cat


71% Affectionate, 43% Excitable, 51% Hungry




You are the classic Shakespearian tragedy of the lolcat universe. The sad story of a baking a cookie, succumbing to gluttony, and in turn consuming the very cookie that was to be offered. Bad grammar ensues.



To see all possible results, checka dis.




Link: The Which Lolcat Are You? Test written by GumOtaku


~Haffi

þriðjudagur, janúar 22, 2008

Skrýtið þegar maður fréttir af dauða einhvers og fær sting í magann afþví að manni fannst maður hafi þekkt manneskjuna. Svipað og það hefur áhrif á mann þegar manneskja á Íslandi sem maður rétt kannaðist við hverfur á brott. Ég býst við að dauði annars minni mann á sinn eigin ódauðleika og þessvegna verði það persónulegt, það speglast í manni sjálfum. En þá er kanski mikilvægast að heiðra líf manneskjunnar og muna að hún lifði og að hún skipti mann einhverju máli, sama hversu léttvægileg kynnin virtust á sínum tíma.

fimmtudagur, janúar 17, 2008

Ég á einfaldlega ekki til orð...

mánudagur, janúar 14, 2008

sunnudagur, janúar 13, 2008

Nei, nú hættir þú.

Þó að ég búi í Noregi þá er ég ekki dottin útúr íslenskum húmor. Hangi t.d. óbærilega mikið á netinu og reyni að lepja í mig allskyns upplýsingar.
T.d. fréttir maður allt slúðrið við að skoða Moggabloggin...úff...þvílík úrkynjun á pörtum. En nóg um það.

Fór að taka eftir nokkrum frösum uppúr október eða nóvember. Allir voru að nefna Starfsmann á plani, eða já fínt já sæll, eigum við að ræða þetta eitthvað eða?
Í jólafríinu fékk ég loksins að vita að þetta væri úr Næturvaktinni sem ég fékk svo í jólagjöf! Ótrúlega gaman að þessu, alltí einu er maður að kasta fram frösum úr íslenskum sjónvarpsþáttum (sem heita ekki Fóstbræður).



Þyrfti eiginlega að fá mér þetta sem hringitón. Það er kanski hægt að vera með þjóðlegan hringitón án þess að hafa Sveinbjörn Beinteinsson með rímur úr Rokk í Reykjavík.
Nú er systir mín og mágur sem búa útí Noregi búin að sjá nokkra þætti svo við getum nördast í þessu saman.
Valgeir litli strákurinn þeirra svaf vært útí vagni þangað til heyrðist þrusk í barnatalstöðinni. Þrusk í talstöð hljómaði alltof kunnuglega og ég læddi útúr mér: "Starfsmaður á plani"...og svo grét ég úr hlátri af eigin fyndni...þeim fannst þetta allveg fyndið líka..kanski ekki jafnmikið og mér...

Kveðja, Flemming Geir.
Hver man nú ekki eftir þessum gamla smell ;)



Kveðjur frá London

~Haffi

fimmtudagur, janúar 10, 2008

Yay, ég er farinn að blogga hér :D



Ótrúlegt en satt, þá náði þetta að fanga hug heimsins! Ég horfði virkilega á þetta allt þegar ég var að deyja úr leiðindum í jólafríinu. Mæli ekki með því :p

Tumi

miðvikudagur, janúar 09, 2008

Barista Exchange

Allir að skrá sig!

þriðjudagur, janúar 08, 2008

Aaargh! Ég sem óskaði þess svo heitt að ég fengi að sleppa við stærðfræði á þessari lokaönn minni. En nei, ég þarf að endurtaka helv. áfangann frá því fyrir jól af því ég gat ekki drullast til að fá 0.3 hærra í lokaprófinmu fyrir jól! Ekki nóg með það, heldur er þetta leiðinlegasti stærðfræði áfangi í himingeyminum. helv. tölfræði.

En það er samt margt gott við þessa önn, t.d er ég búin 10:20 á miðvikudögum og mæti bara í tvo tíma á föstudögum! Þannig að ef það vantar fólk á miðvikudögum, eða einhver vill fá frí, hringið í mig!

Annars er ég nýkomin frá London þar sem ég eyddi aðeins of miklum pening (bara sem dæmi: ca. 23.000 í DVD og geisladiska, og a.m.k 16.000 bara í Mark's & Spencer -_-) og nældi mér í myndarlegt kvef. Það var samt alltaf orðið bjart klukkan 9 og það dimmdi um fimmleytið, svo ég sá allavega meiri dagsbirtu en undanfarnar vikur. En enginn gat gert almennilegt heitt súkkulaði, nema einn staður sem bjó það til úr belgísku súkkulaði! Annars var þetta bara heitt (ógeðsleg) mjólk með smá kakólit! Ömó!

Spice Girls voru geðveikar! Ég mæli með þessum tónleikum, þetta var svo gaman! Reyndar heyrði ég voða takmarkað daginn eftir þar sem píkuskrækirnir voru svoldið miklir, enda 17.000 stelpur þarna samakomnar! Ég á bara voðalega lélegar myndir og vidjó sem ég tók á símann minn, þannig ég veit ekki hvort þið hafið gaman af því.

Úps, þetta varð aðeins lengra en ég bjóst við - en við hverju er að búast, ég var sett fyrir framan tölvuskjá og sagt að fylgjast með!
ég fékk kúlu á hausinn á laugardaginn


já það er lítið að gera hjá mér.....


bloggið mitt

mánudagur, janúar 07, 2008

sorrý gæs að ég skyggi á emó myndina ykkar en ég varð bara að setja þetta vídjó inn...

þar sem við höfum svo gaman að svona hlutum...
Þrallur og Salvör sitja geðveikt emó fyrir framan geit 12 á Leifsstöð.

laugardagur, janúar 05, 2008

jæja já

þá er komið að því að við kveðjum þetta lið sem er að yfirgefa okkur til útlanda....
í kvöld verður hittingur hjá henni Hörpu
fyrst og fremst er þetta fyrir hann Þórhall okkar sem yfirgefur okkur til lands íranna passaðu þig á IRA og leprekons
svo er Haffi að fara aftur til Londres, passaðu þig á öllum ensku morgunverðunum og gráu jörlunum þar
svo er Salvör líka að leggja af landi brott og hún skal sko passa sig á rauða ljóninu,en hann býr reyndar í fredrikstadt

en já gleðin byrjar á venjulegum partýtíma svona uppúr níu skulum við segja, þá verður allt orðið hreint og fínt

hilsen Harpa

sunnudagur, desember 30, 2007

Jæja já
Senn fer árið að renna sitt skeið og af því tilefni vil ég bjóða öllum í áramóta/útflutnings party annað kvöld hérna á Hringbrautinni =)
Hér verður rífandi stemmari eins og vant er hér á bæ
Hlakka til að sjá sem flesta
KV. Kata

fimmtudagur, desember 27, 2007

Gleðileg jóla allir...vonandi áttu allir góð jól:)

Mér langar bara að þakka Hörpu og co fyrir frábært FRÁBÆRT jólakort! Ég held ég setji það bara í gullsleginn ramma:P

well...hvað er plan hjá fólki yfir áramótin?

Mitt plan er áramótakjúlli heima með stjörnuljósum og skála í kampavíni...skjóta upp Stóru Bertu fyrir framan Hallgrímskirkju og svo bara heim í rautt og jólabjórinn...vonandi kíkir eitthvað fólk við:P

Haffi!!: Bara fyrir þig þá er ég búin að ákveða að þema áramótapartýsins hjá mér er (tarammmm!) = ÁLPAPPÍÍÍÍÍÍR!!!

-Kolbrún

ps. María bað um hjálp við að finna gott þema á áramótapartýið sem hún ætlar að halda... einhver?

tillaga 1: Blöðrur og Bavíanar?

mánudagur, desember 24, 2007















Gleðileg jól elsku samstarfsmenn og passið að borða ekki yfir ykkur af jólamat! Hafið það gott í jólafríinu og njótið þess að fá smá frí.




fimmtudagur, desember 20, 2007

sunnudagur, desember 16, 2007

Image and video hosting by TinyPic

síldin sem að þið misstuð af...
WAAAHHHHHHH!


Ég er mega lúði!!!
Ég gat ómögulega munað í hvaða götu Harpa á heima svo ég bara labbaði og labbaði og labbaði með síldina mína lengi lengi lengi...fann ekkert sem sagði mér að hérna ætti Harpa heima...og ég þorði hvergi að banka...oooog síminn minn var úber inneignarlaus...wahhh!

Núna sit ég semsagt heima og bitrast yfir fjörinu sem að ég er að missa af:(

ÖMÓÓÓÓ!!!

En ég vona að þið sem munduð í hvaða götu Harpa á heima hafið átt frábært kvöld:)...og hlegið soldið af mér...


-Kolbrún megalúði

fimmtudagur, desember 13, 2007

Fjör í Lágmúlanum!!! =D

Nú er frost á fróni!

H20+H20
hmmm já Kolbrún nokkuð til í þessu
ég er allavega búin að vera á fullu í jólahreingerningum í vikunni svo allt verið sett fyrir laugardaginn sem var dagsetningin ekki satt, sollý Sallapjalla mín.
en já það sem þarf að ákveða er hverjir ætla að koma og með hvað, ekki hef ég efni á að splæsa oní ykkur öll
ég er í Lágmúlanum í dag og á morgun til klukkan hálf fjögur, verð reyndar upptekin eftir að ég er búin að vinna bæði í dag og á morgun, svo ég held það sé gáfulegast ef þú kemur til mín þegar þú getur, er svo í fríi á laugardaginn

jiii það var kona að koma inn sem ég afgreiddi og hún var bara berleggjuð í pilsi hress á því um miðjan desember í júlí fatnaði
hresst

en já það er nú til eitthvað af jólanammi heima hjá mér en svo er spurning hvort kannski allir komi með eina rauðvínsflösku til að búa til heitt jólavín, ég get redddað kanil og negul og rúsínum og svoleiðis ef fólk er til í það, finnst soldið spennó að gera mikið úr þesssu og hafa mat og alles... hvað finnst ykkur kiddos

Látið mig og Kolbrúnu vita
Harps

miðvikudagur, desember 12, 2007

Hæ:)

hmmm...vildi bara segja að fyrirhugað er jólaglögg fljótlega...ég og Harpa þurfum bara að hætta að vera busy og vanrækja kærastanna eitt kvöld til að skipuleggja þetta...Harpa? Hvenær ert þú ekki busy? Ætti ég kannski bara að koma í vinnuna til þín?

-Kolbrún Ýr

þriðjudagur, desember 11, 2007

From the shadowz� Ninja Kittenz 4 Justice
moar funny pictures

mánudagur, desember 10, 2007

þessi er fyrir Kristínu

nobody puts Bunny in the corner
moar funny pictures

ég er alveg orðin húkkt á þessari síðu Tumi, damn youz....

fimmtudagur, desember 06, 2007

Haffi, þ.e.a.s. ég, er að koma heim á laugardaginn 8. des. =) því til fagnaðar ætlar hann að fara á Q bar um kvöldið og honum þætti vænt um ef þeir sem hafa áhuga á að sjá hann aftur eftir 3 mánaða bil gætu komið og hitt hann.

Hann býst við því að vera á Q bar mestallt kvöldið en ætlar einnig að athuga nýja gay staðinn "black". Anyway.

Fuckus! hehehe..

~Haffi
Kaffitár í Bankó er 10 ára í dag, vei vei.

miðvikudagur, desember 05, 2007

Do My Job: Barista






Og eitt sem mér fannst frekar vonlaust, og vona að kúnnarnir fari ekki að fylgja eftir þessum ráðum!



How to meet her if she works as a coffee barista?





Aðalheiður

þriðjudagur, desember 04, 2007

Ég á ekki til orð.......segi ekki meir

Þetta er handa Haffa:)

mánudagur, desember 03, 2007

CRAIG DAVID BARA ALL GROWN UP



muniðiggi eftir honum